Króatarnir á leið frá Fram? Þeir Pajic og Rimac, Króatarnir sem gengu til liðs við Fram fyrir leiktíðina, hafa ekki staðið undir þeim væntingum, sem til þeirra voru gerðar. Því eru þeir að líkindum á förum frá Safamýrarliðinu, sem ekki enn hefur hlotið stig í Símadeildinni. Pétur Ormslev, formaður meistaraflokksráðs Fram segir þá ekki hafa fallið inn í hópinn og því sé best að losa þá undan samningi við liðið. Pétur sagði ennfremur að ætlunin væri ekki sú að kaupa aðra leikmenn, heldur að láta þann leikmannahóp sem liðið hefur núna duga út sumarið.