Gerð verður rannsókn á félagaskiptum Christian Ziege, en hann fór frá Middlesbrough til Liverpool. Rannsóknin verður gerð að beiðni Middlesborough. Þeir eru ævareiðir og vilja vita hvers vegna í ósköpunum Liverpool vissi af því í samningnum sem sagði til um að Ziege gæti farið ef boðnar væru 5,5 milljónir punda. Vissulega virðist eitthvað óhreint í pokahorni Liverpool-manna, því þrjú önnur lið eru sögð hafa boðið 7,5 milljónir punda. Middlesboro-menn eru staðráðnir í að berjast fyrir rétti sínum og fá rétt markaðsverð fyrir Ziege. Aðalspurningin er hvernig Liverpool komst að verðinu sem Ziege yrði seldur fyrir.