Að sögn Viv Andersons, aðstoðarknattspyrnustjóra enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, hefur Real Madrid samþykkt tilboð félagsins í Steve McManaman. Anderson sagði þetta í viðtali við BBC-sjónvarpsstöðina í morgun. McManman var í gær sterklega orðaður við Chelsea.