Kvennalið Vals sigraði í kvöld Meistarakeppni Knattspyrnusambands Íslands, með stórsigri gegn ÍBV, 10:0. Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Íslandsmeistaralið Vals, Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk en þær Dóra Stefánsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Laufey Jóhannsdóttir og Málfríður Sigurðardóttir skoruðu eitt mark hver gegn bikarmeistaraliði ÍBV frá Vestmannaeyjum. Þetta er annar sigur Valsliðsins á leiktíðinni en liðið varð á dögunum deildabikarmeistari.