Derby County eru að sögn ýmissa fréttamiðla, að undirbúa tilboð í hinn 32 ára rúmena, Robert Prosinecki.
Prosinecki sem er miðjumaður, hefur leikið með mörgum þekktum liðum einsog t.d. Red Star, Barcelona, Real Oviedo, Real Madrid og Sevilla. Auk þess að hafa leikið marga landsleiki.

Gianluigi Buffon, hinn 22 ára gamli markvörður Parma, lýsti því yfir að hann væri ekki á förum frá liðinu, þrátt fyrir að hafa verið orðaður við mörg stórfélög einsog t.d. Barcelona, Juventus og A.S. Roma.

Fabrizio Ravanelli, framherji Lazio og fyrrverandi leikmaður Middleboro og Marseille, er að öllum líkindum á leið til Leicester,
en Leicester þarf aðeins að borga 2milljónir punda fyrir kappa, sem reyndar vegur það upp með háum launakröfum, en sagt er að hann vilji allt að 50.000 pund á viku, sem er fullmikið að mati Peter Taylor stjóra Leicester.

Einnig er það að frétta að Arsenal, Leeds og Sunderland eru á eftir Francis Jeffers, hinum unga framherja Everton, sem hefur sagst vera á förum frá félaginu.

Og Frank De Boer féll á seinna lyfjaprófi sínu, einsog landi hans Edgar Davids.

Kveðja
H.Þ.H.