 Þriðja umferð Símadeildarinnar hófst í dag með fjórum leikjum.  Klukkan fjögur áttust við Fimleikafélag Hafnarfjarðar og Knattspyrnufélag Reykjavíkur, í knattspyrnuleik.  Það voru nú samt leikmenn Fimleikafélagsins sem báru sigur úr bítum, enda leikur Íslandsmeistaranna afspyrnu slakur.  FH-ingar áttu einfaldlega miklu meira í leiknum og áttu sigurinn fyllilega skilinn, þó svo að bæði mörkin hafi komið algerlega upp úr þurru.  Fyrra markið skoraði Atli Viðar Björnsson á 22. mínútu og Jóhann Möller bætti við öðru marki aðeins fjórum mínútum síðar.  Það vakti athygli að KR-ingar spiluðu í gulum, forljótum búningum, og mátti vart greina Shell-merkið.  Síðari hálfleikurinn var einstaklega leiðinlegur fyrir áhorfendur og ber að geta einskis úr honum.  Í kvöld voru þrír leikir leiknir, Fylkir og Valur skyldu jöfn, 0:0, ÍA vann Keflavík, 2:0, og Grindavík krækti í sín fyrstu stig í 2:1 sigri gegn Breiðablik.
              
              
              Þriðja umferð Símadeildarinnar hófst í dag með fjórum leikjum.  Klukkan fjögur áttust við Fimleikafélag Hafnarfjarðar og Knattspyrnufélag Reykjavíkur, í knattspyrnuleik.  Það voru nú samt leikmenn Fimleikafélagsins sem báru sigur úr bítum, enda leikur Íslandsmeistaranna afspyrnu slakur.  FH-ingar áttu einfaldlega miklu meira í leiknum og áttu sigurinn fyllilega skilinn, þó svo að bæði mörkin hafi komið algerlega upp úr þurru.  Fyrra markið skoraði Atli Viðar Björnsson á 22. mínútu og Jóhann Möller bætti við öðru marki aðeins fjórum mínútum síðar.  Það vakti athygli að KR-ingar spiluðu í gulum, forljótum búningum, og mátti vart greina Shell-merkið.  Síðari hálfleikurinn var einstaklega leiðinlegur fyrir áhorfendur og ber að geta einskis úr honum.  Í kvöld voru þrír leikir leiknir, Fylkir og Valur skyldu jöfn, 0:0, ÍA vann Keflavík, 2:0, og Grindavík krækti í sín fyrstu stig í 2:1 sigri gegn Breiðablik.Staða markahæstu manna er þessi:
Jóhann Möller FH 2
Ólafur Örn Bjarnason Grindavík 2
Hjörtur Hjartarson ÍA 2
Grétar Rafn Steinsson ÍA 2
Haukur Ingi Guðnason Keflavík 2
Matthías Guðmundsson Valur 2
 
        



