Leikmannanjósnarar Manchester United á Ítalíu virðast ekki unna sér hvíldar, en enn ein smástjarnan úr ítölsku A deildinni er orðaður við United.

Davide Baiocco, leikmaður Perugia, hefur spilað frábærlega vetur og hefur vakið áhuga nokkurra stórliða, s.s. Man. United og Juventus.
Þessi 26 ára miðjumaður hefur unnið vel með leikmönnum eins og Marco Materazzi og Fabio Liverani, en er eini leikmaður Perugia sem hefur vakið athygli annara félaga.
United eru að endurbyggja leikmannahóp sinn og hafa verið orðaðir við nokkra ítalska leikmenn t.d. Marco Marchionni og Massimo Maccarone, sem báðir leika með Empoli í B-deildinni.

Baiocco myndi þó eflaust ekki vera ódýrasti kosturinn í stöðunni, þ.e Perugia, ef oft hafa neyðst til þess að selja bestu leikmenn sína, hafa gert samning við leikmanninn fram til ársins 2006