Manchester United hafa gefið út leikjalista sinn á undirbúningstímabilinu og hefst það á æfingaverð til Austurlanda fjær. Einnig eru á dagsskránni ágóðaleikir handa Wrexham og nágrönnum United í Bury.
“Þetta er frábær leikur fyrir Bury FC, fyrir stuðningsmenn okkar og það er magnað fá eitt eitt stærsta félag heims í heimsókn,” sagði stjórnarformaður Bury, Terry Robinson.
“Er til betri leið til þess að hefja keppnistímabilið en leikur sem væri heiður fyrir hvaða lið sem er í heiminum?”
Sir Alex Ferguson hefur lofað að senda sterkasta lið Manchester United í leikinn.

Undirbúningstímabil United:

9. júli: Undirbúningstímabilið hefst.
22. júlí: Tæland - Man. Utd.
24. júlí: XI Boðslið singapúrska knattspyrnusambandsins - Man. Utd.
29. júlí: Malaysía - Man. Utd.
1. ágúst: Man. Utd - Celtic (Ágóðaleikur Ryan Giggs)
4. ágúst: Wrexham - Man. Utd. (Ágóðaleikur Brian Flynn/Kevin Reeves)
12. ágúst: Man. Utd. - Liverpool (Góðgerðarskjöldurinn, Cardiff)
18.ágúst: Upphaf nýs keppnistímabils.