Skagamenn töpuðu síðari leik ÍA og Gent í Evrópukeppni félagsliða í dag, 3:2 og því samanlagt 6:2. Skagamenn komust yfir snemma leiks með marki Haraldar Hinrikssonar eftir góðan undirbúnig Uni Arge. Belgarnir jöfnuðu skömmu síðar, en undir lok fyrri hálfleiks komust Skagamenn yfir á ný með marki Kára Steins Reynissonar. Lengra komust Skagamenn ekki og Belgarnir bættu við tveimur mörkum í síðari hálfleik.