Nú er talið að Lazio ætli að bjóða í Steve McManaman. Real Madrid ætlar að selja kappann vegna stórskulda félagsins. Hann hefur verið orðaður við Leeds, Middlesboro og Newcastle, en hann segist ekki vilja fara til Englands. Lazio þurfti að selja miðjumanninn Sergio Conceicao til að hafa efni á að kaupa Hernan Crespo og þjálfari liðsins vill styrkja miðjuna. Hann reyndi að fá Boudewijn Zenden en tókst ekki og nú reynir hann við McManaman.