Ég vil hér með óska Chelsea og stuðningsfólki þeirra til hamingju með titilinn. Ég er sjálfur Manchester maður í húð og hár og hefði viljað sjá þá taka titilinn enn einu sinni en það ætti að vera öllum ljóst að enginn fer að slá þessu frábæra liði af toppinum. Þeir eru hreinlega of vel skipulagðir og vinnusamir fyrir flest öll hin liðin í deildinni.
Þessu vörn hjá þeim er eins og stálveggur… nánast óbrjótanlegur en öðru hvoru kemst loftgustur í gegn. Og ekki er sóknin verri, hreinasta markamaskína með menn eins og Lampard, Drogba, Roben og aðalmannin Eið Smára :)

En ekki setja bikarinn á of háan skáp…. Sir Alex og strákarnir koma að sækja hann bráðlega :)