Komandi landsleikir Liðið sem leikur gegn Maltverjum og Búlgörum í undan keppni Heimsmeistarakeppninnar 2002 mun verða kunngert af Atla Eðvaldssyni á föstudag. Ísland leikur gegn Möltu laugardaginn 2. júní og Búlgaríu miðvikudaginn 6. þess mánaðar. Að sögn Atla hefur enginn leikmannanna frá síðasta leik afboðað þátttöku vegna meiðsla, en þó er Andri Sigþórsson tæpur, en hann lék ekki með liði sínu, Salzburg, um síðustu helgi vegna meiðsla. Salzburg á leik á morgun og munu þá línur skýrast hvað varðar hans þátttöku í leikjunum. Í síðasta leik landsliðsins, sem var í Möltu, var Heiðar Helguson ekki með vegna leikbanns, en hann mun koma inn í liðið fyrir leikina tvo. Lárus Orri Sigurðsson verður í leikbanni sökum eftirminnilegs brottreksturs sem hann hlaut á móti Búlgörum í mars.