George Burley stjóri Ipswich hefur verið valinn besti stjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni, Ipswich kom verulega á óvart og luku þessu tímabili í 5. sæti og komust þar af leiðandi í U.E.F.A. keppnina, eftir að hafa komist upp í fyrra.
Fæstir bjuggust við miklu frá þessu unga liði Ipswich, og spáðu þeim margir falli.
Þetta er því mikill heiður fyrir Burley sem átti þetta skilið fremur en nokkur annar að mínu mati.