Fyrsti toppslagurinn í kvöld Önnur umferð Símadeildarinnar hefst í kvöld með fjórum leikjum. Í Kópavogi taka Blikar á móti Frömurum, en í fyrstu umferðinni unnu Blikar Eyjamenn, 1:0. Framarar töpuðu hins vegar sínum leik gegn Val, 2:3. Eyjamenn taka á móti FH í Eyjum, en eins og fyrr kemur fram töpuðu Eyjamenn í fyrstu umferð, á meðan FH-ingar gerðu 2:2 jafntefli við Skagamenn á Skipaskaga. Valsmenn, sem unnu Framara í fyrstu umferð, tak á móti Grindavík, en þeir töpuðu í fyrstu umferðinni á móti Keflavík, 1:2. Toppslagurinn verður á milli Keflvíkinga og Fylkis, en bæði lið unnu sinn leik í fyrstu umferð. Fylkismenn lögðu þá KR að velli í Árbænum, 1:0, en Keflvíkingar unnu Grindvíkinga í Grindavík. Á mánudaginn kemur lýkur svo annarri umferð með stórleik KR og ÍA í vesturbænum.