Phil Neville og Nicky Butt eru sagðir á leiðinni til Blackburn Rovers í sumar.
Butt hefur áður verið sagður á leiðinni til Ewood Park fyrir einar £7 milljónir, á meðan Phil virðist ætla að verða orðaður við fjölmörg lið hvert einasta sumar.

En eftir síðustu yfirlýsingar Sir Alex Ferguson um að hann þurfi að styrkja lið sitt þá virðist þessi orðrómur ekki eiga við rök að styðjast, og Phil Neville vonar það svo sannarlega.
“Ég held að ég hafi ekki bara verið orðaður við Blackburn. Hvert einasta sumar er ég orðaður við nokkur lið. Ég held og vona að þetta séu bara vangaveltur.”