Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, ætlar sér að ganga frá einum risakaupum í sumar og ætlar að koma í veg fyrir að liðið dali.
“Það er ekki hvort heldur hvenær við kaupum nýja leikmenn,” sagði Ferguson í samtali við breska blaðið The Sun í síðustu viku.
“Við verðum að ná þeim eða við förum niður á við. Fleiri og fleiri leikmanna minna hafa tekið undir þetta. Þeir gera sér grein fyrir því að við þurfum ferskt blóð og topp gæði.”
“Þegar við fáum leikmennina hef ég trú á að við verðum komnir með hóp sem getur sett mark sitt á Evrópu.”
"Ég keypti bara einn aðalliðsleikmann fyrir ári, á meðan fimm aðaliðsleikmenn fóru, svo nú er tími fyrir endurbyggingu, og það er það sem ég ætla mé