Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd., hefur hvatt forráðamenn félagsins til þess að setjast niður með Denis Irwin hið snarasta og bjóða honum nýjan samning, en Irwin verður samningslaus í sumar og hann hefur gefið það í skyn að hann gæti farið frá United til liðs þar sem hann fengi örugglega að spila meira.

“Ég vona að þeir drífi í því að klára dæmið sem fyrst. Irwin hefur þjónað félaginu vel og lengi og ég vil gjarnan hafa hann áfram, en þetta virðist ganga eitthvað hægt.

”Denis er ennþá einn af bestu varnarmönnum deildarinnar og hann mun halda áfram að hjálpa okkur í baráttunni," sagði Ferguson.