Fréttir af Grindavík Zoran Djuric, varnarmaðurinn sterki sem lék með Grindvíkingum í fyrra, mun leika með Grindvíkingum í sumar. Þetta fékkst staðfest í gær. Fyrr hafði hann ákveðið að leika ekki hérlendis þetta sumar, en Grindvíkingum tókst að fá hann á sitt band og nú er verið að vinna að því að fá hann til landsins. Hann mun þó ekki leika með Grindavík í tveimur fyrstu umferðunum, gegn Keflavík heima og Val úti vegna tveggja leikja banns sem hann hlaut fyrir fjölda áminninga í fyrra, átta talsins. Vegna leikbanna verða Grindvíkingar með vængbrotið lið í upphafi móts, en auk Zoran Djuric eru Sinisa Kekic og Óli Stefán Flóventsson í banni. Kekic hlaut þriggja leikja bann í fyrra, en hann sleppti tveimur síðustu leikjum Landssímadeildarinnar í fyrra.