Sigurður Jónsson spilar væntanlega ekki með FH-ingum gegn sínum gömlu félögum í ÍA þegar að félögin mætast í fyrstu umferð Símadeildarinnar á fimmtudaginn. Fyrir skömmu gekkst Sigurður undir aðgerð á liðþófa og er enn að jafna sig. Það er jafnvel talið að hann missi af tveim fyrstu leikjum FH á Íslandsmótinu. FH leikur gegn ÍBV í eyjum í annarri umferðinni.