Dave Moyes, stjóri Everton hefur ákveðið að sekta Duncan Ferguson um 70.000 pund fyrir að hafa verið sendur af velli í leik Everton og Charlton í gær. Ferguson gaf okkar manni Hermanni Hreiðarssyni olnbogaskot eftir að hafa verið aðeins 10 mínútur inn á vellinum en Ferguson kom inn á sem varamaður. Dave Moyes er sagður vera æfur yfir þessari vitleysu í leikmanni sínum og ætlar að sekta hann um 70.000 pund sem er hæsta sekt sem menn geta þurft að borga hjá Everton. Þetta eru um tveggja vikna laun leikmannsins.