Wayne Rooney, framherji Manchester United, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að slá til Ben Haim, varnarmanns Bolton. Atvikið fór fram hjá dómara leiksins, en enska knattspyrnusambandið skoðaði upptökur af leiknum og komst að þessari niðurstöðu. Ronney á yfir höfði sér 3 leikja bann, en hann hefur frest til klukkan 18 á morgun til þess að svara fyrir sig.