Guðni Bergsson var valinn leikmaður ársins hjá enska 1. deildarliðinu Bolton Wanderes af stuðningsmönnum, leikmönnum, helstu styrktaraðilum, stuðningsmönnum auk þess að hljóta nafnbótina “leikmaður ársins” hjá Bolton. Þetta er annað árið í röð sem Guðni hlýtur allar fjórar nafnbótirnar og hefur það aldrei áður gerst í sögu Bolton. Guðni tók á móti verðlaunum fyrir leik Bolton og Sheffield United í lokaumferðinni á sunnudag við mikinn föguð viðstaddra. Bolton hafnaði í þriðja sæti 1. deildarinnar og mun keppa við WBA um laust sæti í úrvalsdeild.