Nú hefur heyrst að Barcelona sé tilbúið að bjóða Sol Campbell risasamning. Sagt er að tilboðið hljóði upp á 100.000 pund á viku og það eftir skatt. Þetta þýðir 5 milljónir punda á ári. Eins og líklega flestir vita verður Sol laus allra mála á White Hart Lane í sumar. Hann getur því farið án greiðslu og þess vegna er Barca reiðubúið að borga honum slík laun. Ef Campell semur fer hann á toppinn á launalista félagsins, við hlið Rivaldos og verður einn tekjuhæsti leikmaður í heimi. Glenn Hoddle vonast samt enn til að halda í fyrirliðann sinn en Sol er sem stendur meiddur á ökkla og getur ekki spilað meira á tímabilinu.