Frestur til að skrá Venslasamninga rann út á þriðjudaginn. Tuttugu félög hafa gert samninga sín á milli að undanförnu. Tíu lið úr tveim efstu deildunum hafa gert svona samning við lið í neðri deildum og geta þar með flutt leikmenn sín á milli mestallt tímabilið. Eftirfarandi lið hafa gert svona samninga:

KA (1) - Nökkvi (2)
Þór (1) Völsungur (3)
Tindastóll (1) - Hvöt (3)
Þróttur R. (1) - Úlfarnir Grafarvogi (3)
ÍBV (S) - KFS (3)
Grindavík (S) - GG (3)
Fram (S) - Haukar (2)
KR (S) - Fjölnir (2)
Keflavík (S) - Njarðvík (3)
Fylkir (S) - Afturelding (2)