Flestir styðja KR Samkvæmt könnun sem gerð var á vegum Gallup eru langflestir Íslendingar stuðningsmenn Knattspyrnufélags Reykjavíkur. Úr 1500 manna úrtaki eru 105 sem styðja KR, en næstu félög, sem eru Valur, Fram og ÍA eiga helmingi færri áhangendur, eða 5% þeirra sem svöruðu. Þar fyrir neðan koma ÍBV, KA, Keflavík og Fylkir, sem kemur eilítið á óvart, því Fylkismenn voru með næstflesta áhorfendur á leikjum sínum, á eftir KR í fyrra. Eitthvað ósamræmi virðist því vera þar á ferð. Um 75% kvenna halda með einhverju liði og 81% karla. Könnunin var gerð í mars síðastliðnum.