Kvennalið Vals fær liðsstyrk Kvennalið Vals í knattspyrnu hafa gengið frá samningi við belgíska landsliðskonu, hina 21 árs gömlu Marijke Callebaut. Callebaut hefur undanfarið spilað með belgísku meisturunum, Eendracht Aalst. Hún hefur verið í byrjunarliði belgíska landsliðsins og spilaði alla leiki þess í undankeppni EM.
Ástæða kaupanna mun vera sú að Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir mun ekki ná til landslins fyrir upphaf Símadeildar kvenna. Auk Vals sýndi lið frá Flórída áhuga á að fá Callebaut til liðs við sig, en henni þótti meira spennandi að koma til Íslands. Ekki er ljóst hvort Callebaut verði út tímabilið hjá Val.