Andri fékk heilahristing Andri Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði fyrsta mark Salzburg gegn Austria Wien á 20. mínútu. Salzburg vann leikinn 4:1, en Andri var borinn útaf á 35. mínútu eftir samstuð við leikmann Austria. Hann mun hafa fengið heilahristing en var þó mættur á völlinn aftur til að fylgjast með gangi mála. Salzburg er í sjötta sæti deildarinnar, en tíu lið eru í deildinni. Fimm umferðir eru eftir og Salzburg eygir möguleika á Evrópusæti, en fremur mikið þarf til þess að koma.