Ipswich tapar Loksins tapar Ipswich stigum, og var það gegn Charlton. Við það minnkuðu möguleikar þeirra á meistaradeildarsæti, því eins og þeir sem fylgjast með vita, þá hefur mesta spennan undanfarið verið um þetta þriðja sæti.
Þó er ekkert gefið í þessum efnum, því Liverpool á Bradford, Newcastle, Chelsea og Charlton eftir, og þótt bradford leikurinn ætti að teljast gefins, þá hefur Poolurum ekki gengið 100% gegn þeim áður. Minnumst tapsins á Anfield á síðasta tímabili.
Leeds á Leicester, Arsenal og Bradford.
Auk þess eiga bæði lið leik í Evrópu, og Liverpool bikarúrslit. Það er því ekki allt úti hjá Ipswich, þrátt fyrir glötuð stig…