Keflvíkingurinn Magnús S. Þorsteinsson fór í morgun til Svíþjóðar, þar sem úrvalsdeildarliðið Örgryte hefur hann til reynslu fram í næstu viku. Keflvíkingar fara í æfingaferð til Hollands í næstu viku og er þá ætlun leikmanna og þjálfara Örgryte að fylgjast nánar með Magnúsi, sem er átján ára gamall. Hann lék átta leiki með Keflvíkingum síðasta sumar og skoraði í þeim eitt mark. Íslendingurinn Jón Pétur Róbertsson þjálfar unglingalið Örgryte og sér einnig um að finna efnilega leikmenn fyrir félagið.