Silvestre heimtar meiri samkeppni. Frakkinn Mickael Silvestre hjá Man. Utd. segir að ekki sé næg samkeppni um stöður hjá Man. Utd. og vill hann að Ferguson kaupi fleiri leikmenn. Hann segir að til að leikmenn séu alltaf á tánum og taki framförum þurfa menn að hafa fyrir því að vera í liðinu og sú sé ekki raunin hjá Manchester, sérstaklega á miðjunni og í vörninni.
Man. Utd. aðdáendur hljóta að vera ánægðir með að heyra þetta, en svona mættu fleiri leikmenn hugsa!