Vialli næsti stjóri Watford! Fréttir herma að það sé frágengið að Vialli taki við af Graham Taylor, í sumar, en hann ætlar að hætta öllum afskiptum af knattspyrnu í lok tímabilsins.
Vialli segist vera mjög spenntur fyrir þessu og segist hlakka til að sýna mönnum fram á að hann sé ekki síðri þjálfari á æfingavellinum en hann er góður á leikmannamarkaðnum, en Watford er ekki ríkur klúbbur og býst Vialli ekki við að geta keypt marga leikmenn, eins og hann gerði hjá Chelsea.