Þó nokkrir leikmenn þurfa að byrja tímabilið á því að taka út óúttekin leikbönn. Allt eru þetta eins leiksbönn, nema hvað Grindvíkingurinn Zoran Djuric þarf að taka út tveggja leikja bann. Meðal þeirra sem taka þurfa út eins leiks bann eru FH-ingarnir Davíð Örvar Ólafsson og Ólafur Adolfsson, Grindvíkingarnir Óli Stefán Flóventsson og Sinisa Kekic, Framarinn Valur Fannar Gíslason og Blikinn Þorsteinn Sveinsson. Þá eru ótaldir leikmenn neðri deilda og kvennaflokks.