Íslendingar sigruðu nú áðan Maltverja örugglega, 1:4, í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu.
Maltverjar komust yfir á 13. mínútu leiksins, en Íslendingar komust yfir undir lok fyrri hálfleiks með mörkum frá Tryggva Guðmundssyni og Helga Sigurðssyni. Íslendingar voru öllu sterkari aðilinn í síðari hálfleik og Eiður Smári Guðjohnsen og Þórður Guðjónsson bættu tveimur mörkum við þegar skammt var til leiksloka. Þórður kom inn á sem varamaður einungis þremur mínútum áður en hann skoraði.
Með sigrinum komust Íslendingar upp í fjórða sæti riðilsins, upp fyrir Norður-Íra og eru með 6 stig.