Vladimir Smicer er meiddur og fer tvennum sögum af hversu lengi piltur verður frá. Sjálfur segist hann missa af næstu tveimur leikjum amk, en talað er um að hann verði ekki meira með á þessu tímabili. Hann hefur staðið sig vel með Poolurunum strákurinn og alltaf leiðinlegt ef menn meiðast. Hinsvegar eru góðu fréttirnar fyrir ykkur Poolarar að Barmby og Litmanen eru að komast á skrið og jafnvel talað um að þeir verði tilbúnir í næsta leik. Og Redknapp ætlar sér að spila með í restina, spilar nú með varaliðinu.