Norski leikmaðurinn Andreas Lund sem er samningsbundinn Wimbledon og var nú lánaður til Molde í heimalandi hans verður frá í eitt ár vegna þess að krossbönd í hné hans rifnuðu. Atvik þetta hafði skéð í bikarleik gegn Brann fyrir mánuði og var ekkert vitað hversu lengi hann yrði frá fyrr en að aðgerðinni loknu. Lund sem nú er 25 ára segist ekki ætla að hætta heldur bíða þangað til hann kemur aftur og koma sér strax í form.