Sheringham bestur! Enskir fjölmiðlar sem fjalla um knattspyrnu hafa valið Teddy Sheringham besta leikmann tímabilsins. Beckham kom næstur og þar á eftir Viera og svo Roy Keane.
Menn eiga eflaust eitthvað eftir að deila um þetta en Sheringham hefur spilað frábærlega á þessu tímabili og þó sérstaklega fyrir áramót þegar Man. Utd. liðið var nánast ósigrandi.