Sol Campell hjá Spurs er einn eftirsóttasti varnarmaður heims. Hann á eftir að setjast að samningaborði með Spurs en Man utd, stóru liðin á Spáni og Ítalíu og fullt af minni liðum reyna að plata hann til sín. Nú hefur Leeds bæst í hópnn. Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds segir auðvitað að ekkert sé hæft í þessu, en neitar ekki áhuga á pilti. Það væri snilld að fá hann til Leeds þar sem hann og Ferdinand yrðu saman aftast og einnig í landsliðinu. Campell er samningslaus í júni, en eitthvað kostar sennilega að krækja í drenginn.