Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, hefur gert kunnugan landsliðshóp Íslendinga gegn Möltubúum miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi. Atli hefur gert þrjár breytingar frá leiknum gegn Búlgörum, en þær eru að Lárus Orri Sigurðsson, Heiðar Helguson og Arnar Gunnlaugsson eru teknir út í stað Auðuns Helgasonar, Péturs Hafliða Marteinssonar og Ólfas Arnar Bjarnasonar. Ástæða úttektar Lárusar og Heiðars er leikbann en ekkert slíkt er að segja um Arnar Gunnlaugsson. Andstæðingar okkar, Möltubúar, eru neðstir í riðlinum með eitt stig, sem þeir hlutu gegn Toppliði Tékka í Möltu. Íslendingar eru sæti ofar en Malta með þrjú stig, sem fengust með sigri á Norður-Írum.
Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn:
Markverðir: Birkir Kristinsson og Árni Gautur Arason.
Aðrir leikmenn: Eyjólfur Sverrisson, Rúnar Kristinsson, Arnar Grétarsson, Þórður Guðjónsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Tryggvi Guðmundsson, Andri Sigþórsson, Helgi Kolviðsson, Helgi Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson, Ríkharður Daðason, Brynjar Björn Gunnarsson, Auðun Helgason, Arnar Þór Viðarsson, Pétur Marteinsson.