Eftir fyrstu tvöfoldu æfinguna sína á Pinetina, æfinga svæði Inter,
þá sagði Ronaldo: “Ég veit ekki hvenær ég kem aftur, en ef ég verð
kominn í form í næsta mánuði, þá gæti ég eins spilað, auðvitað
veltur þetta allt á því hvernig mér líður. Ég get gert allt með
boltann og hef nú þegar spilað nokkra litla æfingaleiki. Þess vegna
held ég að það styttist í að ég komi aftur til leiks fyrir Inter.
Vitandi það að ég kæmi aftur til með að spila fótbolta var nógu góð
tilfinning fyrir mig og er ég ekkert að reyna að flýta mér um of og
vill ég þakka öllum Interaðdáendum sem og öðrum sem studdu mig á
meðan endurhæfingunni stóð”.

Nú er bara að vona að “Undrið” komi aftur til leiks jafngóður og
hann var.