Fylkismenn eru komnir í undanúrslit bikarkeppni karla eftir 2:0-sigur á Blikum í Kópavogi. Leikur liðanna var markalaus lengst af og komu bæði mörk Fylkis á síðustu 15 mínútum leiksins. Fyrst skoraði Kristinn Tómasson á 76. mínútu og síðan gulltryggði Gylfi Einarsson Fylkis sigurinn á síðustu mínútunni. Tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum á morgun og einn á mánudaginn.