Rugludallurinn Benito Carbone hefur loksins tekið ákvörðun um hvar hann vill vera á komandi tímabili. Eftir að viðræður milli hans og Bradford fóru út um þúfur síðastliðna nótt höfðu umboðsmenn hans samband við félagið aftur og hófust viðræður að nýju í morgun. Á blaðamannafundi seinnipartinn var síðan tilkynnt að loksins væri búið að ganga frá málinu og að Carbone yrði í leikmannahópi Bradford.