Hinn 30 ára gamli Josep Guardiola hefur sagt það að hann ætli ekki að ljúka ferlinum á Spáni. Guardiola sem er fæddur og uppalinn í Katalóníu og hefur spilað með Barcelona frá því að hann var 14 ára sagði að hann hefði þurft að velta hlutunum lengi fyrir sér áður en hann tók þessa ákvörðun. Sagt er að Bobby Robsson stjóri Newcastle hafi áhuga að krækja sér í Spánverjan en hann þarf nú sennilega að berjast um hann við önnur lið.