Nú er allt í steik með réttarhöldin yfir Bowyer og Woodgate. 5 úr kviðdómi viðurkenndu að hafa lesið grein í sunnudagsblaði(einhverju ensku) eða réttara sagt viðtal við föður piltsins sem var buffaður. Það þótti ekki gott - sérstaklega þar sem kviðdómur var búinn að vera 3 daga að pæla í sekt eða sýknu. Málið hefur nú kostað 6 milljónir punda -ca 700 milljón kall- og heldur bara áfram og áfram. Velja á nýjan kviðdóm á morgun. Það er svo sannarlega ekki tíðindalaust á vesturvígstöðvunum hjá Leeds þessar vikurnar. En þeir standa sig vel.