Vieira knattspyrnumaður ársins??? Arsene Wenger stjóri Arsenal hefur sagt að Patrick Vieira eigi skilið verðlaunin Knattspyrnumaður ársins á Englandi. Vieira sem hefur leikið afburðavel á þessu tímabili og kórónað það með stórkostlegri framistöðu á móti Valencia og Tottenham. Wenger segir að Vieira sé einhver besti fótboltamaður í sinni stöðu í heiminum. Sem við getum verið sammála. Annars er það að frétta að Ruud Van Nistelrooy þaggar niður í þeim orðrómi að hann sé á leið til Man Utd, hann segir enn fremur að ekkert sé mikilvægara en það sem framundan er hjá PSV og hann sé enn samningsbundinn. Lee Hendrie leikmaður Aston Villa þaggar einnig niður í þeim orðrómi að hann sé á leið til Rangers eða Celtic, hann segir að hann sé ákveðinn í að vera áfram hjá Villa og hann vilji hvergi annars staðar vera.