Sheringham fer hvergi. Teddy Sheringham virðist ætla að blása á allar sögusagnir um að hann sé á leið frá Man. Utd. vegna ósættis með lengd samningsins. Hann er reiðubúinn að skrifa undir eins árs samning við meistarana en talað hefur verið um að hann ætli til Spurs ef honum verði ekki boðið tveggja ára samningur hjá Man. Utd. Sheringham er stór hluti af sterkum hóp Man. Utd. og mjög mikilvægt að hann spili í a.m.k. eitt ár í viðbót, en hann hefur skorað alls 20 mörk á tímabilinu og var á tíma besti framherji ensku deildarinnar þó formið hafi aðeins dalað eftir að steig uppúr meiðslum sem hann lenti í í byrjun ársins.