Winston Bogarde greinir frá því í dag að leikmenn Chelsea geri allt sem þeir geti til þess að sannfæra Gianfranco Zola um vera áfram hjá félaginu, en Zola hefur gefið það í skyn að hann gæti farið til Ítalíu í sumar þótt hann eigi enn eitt ár eftir af samning sínum við Chelsea.

“Fyrir mann á hans aldri er hann í ótrúlegu formi og leikni hans er ótrúleg. Menn mega ekki gleyma því að hann hefur gert mörg mikilvæg mörk fyrir Chelsea og ég vona svo sannarlega að hann verði hér á næsta tímabili,” segir Bogarde.

Zola gekk til liðs við Chelsea frá Parma 1996 fyrir 4.5 milljónir punda.