Leik lokið hjá Radebe Leedsarar urðu fyrir miklu áfalli í dag þegar ljóst varð að hinn sterki varnarmaður Leeds, Lucas Radebe, mun ekki spila meira með liðinu í vetur eftir að hann gekkst undir aðgerð á hné. Hann meiddist í leik gegn Real Madrid í Meistaradeildinni fyrr í vetur og hefur ekki tekist að hrista þau almennilega af sér síðan og því var uppskurður eina lausnin.

Mjög slæmt mál fyrir Leeds sem er í fullri baráttu bæði heima fyrir og í Meistaradeildinni.