Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari kynnti í gær sextán leikmenn sem hann teflir fram gegn Svíum á miðvikudag. Leikurinn er hluti af Norðurlandamótinu, en Íslendingar hafa forystu eftir þrjár umferðir. Enginn nýliði er í hópnum og einungis einn sem leikur með innlendu liði. Markverðir eru þeir Birkir Kristinsson og Árni Gautur Arason og aðrir leikmenn eru:
Rúnar Kristinsson, Eyjólfur Sverrisson, Arnar Grétarsson, Þórður Guðjónsson, Ríkharður Daðason, Helgi Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson, Helgi Kolviðsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Auðun Helgason, Tryggvi Guðmundsson, Pétur Marteinsson, Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen. Heiðar Helguson er ekki í hópnum vegna minni háttar meiðsla.