Fréttapunktar úr ítalska boltanum Fernando Couto, Lazio, á yfir höfði sér sex mánaða til tveggja ára bann ef sannast að hann hafi tekið inn stera. Það sem vekur þó athygli er að Couto stóðst lyfjapróf sem hann fór í 5. desember og 13. febrúar. Því verður farið yfir öll lyfjaprófin aftur og athugað hvað hafi gerst.

Couto sjálfur segist ekkert að óttast því hann viti að hann sé saklaus.



Svo gæti farið að Nicolas Anelka sé á leiðinni til Ítalíu í sumar, en samkvæmt fréttum í frönskum fjölmiðlum eru umboðsmenn hans í viðræðum við Inter, AC Milan og Juventus um hugsanleg kaup á Anelka.



Líkur er á að Udinese verði skikkað til þess að spila í B-deildinni á næsta “seasoni” því félagið sagði brössunum Albero og Warley að skrifa undir falsaða pappíra. Þeir voru teknir með fölsuð vegabréf í september síðastliðnum.



Fiorentina sektaði Francesco Toldo um 17.000 pund í gær fyrir að kjafta í blöðin að Fiorentina ætlaði sér að selja hann. Mario Sconcerti, varaforseti Fiorentina, varð æfur þegar hann sá fréttirnar og hefur kallað Toldo inn á teppið.



Fatih Terim tekur kannski ekkei við liði AC Milan næsta sumar þar sem bráðabirgðaþjálfararnir, Cesare Maldini og Mauro Tassotti, hafa fengið liðið til þess að spila einstaklega vel í þeim tveim leikjum sem þeir hafa stjórnað liðinu. Adriano Galliani, varaforseti Milan, er hæstánægður með nýju þjálfarana og segist vel geta hugsað sér að halda þeim næsta vetu