Hinn stórgóði markvörður Fiorentina, Francesco Toldo, mun fara frá Fiorentina eftir leiktíðina. Fyrst var haldið að hann færi til Barcelona en hann hefur sjálfur sagt að svo muni ekki verða; hann vill vera áfram á Ítalíu. Nú er talið að hann muni fara til annars Rómarveldisins, þ.e. Lazio eða Roma.

Þetta verður enginn smá missir fyrir Fiorentina, aðra leiktíðina í röð.